Páskahret og gamalt ljóð

HPIM2163Var hugsað til litlu fuglana sem lifa þennan ótrúlega íslenska vetur.  Hef haft tök á að fylgjast með Snjótittlingum héðan að heiman eins og gengur.  Þá rifjaðist upp fyrir mér gamalt ljóð eftir mig frá 1976 sem ég set hér inn.  Ég kallaði það ,, Þú litli vinur " sem skírir sig sjálft. 

 

Þú litli vinur

Nú blikar á breiðum fanna

með blæfegurð af dansi ljósa

en úti er kuldinn að kanna

kæfa landið og frjósa.

 

Það lætur í verkum vinda

veröldin af háflæði snýr

kjarrið keppist við að linda

kápuna sem vetur til býr.

 

En mitt í miðju kófi

mjór og lítill fugl

söng sem í stóru hófi

snjótittlings vetrar gull.

 

Visinn var vetrar maginn

vonin í brjósti bjó

undir snjó var undra haginn

uggandi söng að sló.

 

Kalt er því að kyngja

kólnaði fljótt hans blóð

náttúran náljóð sín að syngja

nísti hjartað við hinn síðasta óð.

 

         Ólafur H. Einarsson 1976


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Fallegt   Mamma fann í vikunni í snjónum, 3 lítil egg undir húsveggnum. Ekkert hreiður, bara þrjú egg á stangli. Vorið fer að koma...sannaðu til

Rúna Guðfinnsdóttir, 21.3.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband