Færsluflokkur: Bækur
3.10.2008 | 23:09
Snjór og kuldi hvernig er með það ?
Það er annars undarlegt hvað það kemur manni alltaf á óvart þegar fer að snjóa og vetur skellur á. Ekki eins og hafa ekki upplifað þetta áður, en það er ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma ( sem betur fer ). Set hér inn gamalt ljóð frá mér sem ég nefni Árstíðir.
Árstíðir
Er ég einn með þér
eina stund að lifa
sjá hvar þú kemur og ferð
hvernig klukkur tímans áfram tifa.
Fas þitt fegurð er
frjálst þér að hlýða
en andlit þitt aldrei fer
aldin fagri allra tíða.
En hvað hvetur þig
hversu sem árin líða
veturinn er samur við sig
sjálfum sér illur að hlýða.
þú veitir, þú tekur
þú ástríka hljóða gyðja
farfugla frjálsa hingað glepur
framverðir norðurs þig tilbiðja.
Lát mér ljúka þér upp
lyftu mér hærra til skýja
þar sem dysjað er þitt kumbl
þangað dreymir mig að flýja.
Ólafur H. Einarsson 1980
Ég hef um nokkurt skeið ekki ritað mikið hér inn á bloggið og vil ég þakka öllum þeim mörgu sem reglulega líta inn á vefsíðu mína fyrir þolinmæðina.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2008 | 21:58
Páskahret og gamalt ljóð
Var hugsað til litlu fuglana sem lifa þennan ótrúlega íslenska vetur. Hef haft tök á að fylgjast með Snjótittlingum héðan að heiman eins og gengur. Þá rifjaðist upp fyrir mér gamalt ljóð eftir mig frá 1976 sem ég set hér inn. Ég kallaði það ,, Þú litli vinur " sem skírir sig sjálft.
Þú litli vinur
Nú blikar á breiðum fanna
með blæfegurð af dansi ljósa
en úti er kuldinn að kanna
kæfa landið og frjósa.
Það lætur í verkum vinda
veröldin af háflæði snýr
kjarrið keppist við að linda
kápuna sem vetur til býr.
En mitt í miðju kófi
mjór og lítill fugl
söng sem í stóru hófi
snjótittlings vetrar gull.
Visinn var vetrar maginn
vonin í brjósti bjó
undir snjó var undra haginn
uggandi söng að sló.
Kalt er því að kyngja
kólnaði fljótt hans blóð
náttúran náljóð sín að syngja
nísti hjartað við hinn síðasta óð.
Ólafur H. Einarsson 1976
Bækur | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2008 | 19:55
KEA kaupir Hafnarstræti 98 - gömlu húsi bjargað
KEA kaupir Hafnarstræti 98 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2008 | 21:18
Gleðilegt nýtt ár
Gleðilegt nýtt ár !
Óska þeim er lesa bloggsíðu mína og bloggvinum árs og friðar. Læt með ljósmyndir frá áramótum.
Einnig hér fylgir gamalt ljóð um áramótin, frá mér sem ég gerði um ármótin 1975-76.
Áramótakveðja
Árs og friðar árna ég
árin heilla líða
veraldarinnar vandratað fé
vegsemda erfitt að bíða.
Trú og tilbeiðsla göfgi þig
tárin gullnu dvína
þá er þroski eflist við
þrautir hverfa og pína.
Lifðu svo lengi og vel
láttu andann vaxa
bróðurhug já bræðraþel
bæti allar heimsins axa.
Ólafur H. Einarsson 1975
Skotið í rokinu
Álfar áttu líka sín áramót.
Bækur | Breytt 2.1.2008 kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.12.2007 | 13:56
Gleðileg jól
Óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og þakka ykkur mörgum sem hafa
heimsótt bloggsíðu mín á liðnum mánuðum. Megi friður og kærleikur
jólanna fylgja ykkur. Guð blessi ykkur öll !
Bækur | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2007 | 17:43
Veiðisögurnar hans Bubba Morthens - nýja bókin
Nýlega var mér gefin bókin hans Bubba Morthens með langa bókartitlinum : Að kasta flugu í straumvatn er að tala við Guð. Þegar ég heyrði fyrst af þessari bók þá skellti ég í góminn, hvernig ætli kappinn sé á ritvellinum ? Nú, eftir að ég eignaðist bókina, lagðist ég yfir hana og ég verð að segja að hún kemur á óvart. Þá er rétt að taka fram að ég er með ólæknandi veiðidellu líkt og höfundurinn.
Bókin er mjög skemmtileg, stuttar sögur með ljóðrænum texta; nákvæmlega eins og mér finnst að það eigi að vera. Það er nefnilega ljóðrænt að vera að veiða við ár eða vötn í okkar blessaða landi. Ég hef orðað það þannig að verða drukkinn af landinu. Þetta er held ég líka að sé upplifun Bubba Morthens, á hans hátt. Þetta eru fallegar náttúru upplifanir og skemmtilegar sögur af fólki og veiðifélögum höfundar.
Fyrir þá sem enn halda að veiðimennska sé bara ómerkilegt dráp þá ætti þessi bók að opna augun fyrir því gagnstæða. Ég held að bókin skilji ekki við neinn ósnortinn og hreint út sagt er hún yndisleg. Það er því við hæfi að óska Bubba til hamingju með þessa bók. Það er aðeins ein saga í þessari bók sem mér finnst ekki ríma í þessum ljóðræna stíl. Silja Aðalsteinsdóttir er ritstjóri bókarinnar og er það trúleg styrkur verksins að hún er þar með.
Ég vil hvetja Bubba Morthens til að skrifa meira í þessum stíl, fleiri veiðibækur. Eftir að ég hafði lesið bókina var ég með heitstrengingar, um að hnýta mikið af flugum og nota veturinn betur til að vera undirbúin fyrir næsta sumar. Af þessu leiðir að bókin hefur virkað á mig. Þá vil ég ráðleggja þeim sem lesa bókina, af minni reynslu að lesa svona tvær sögur í einu. Þetta er eins og eiga konfektkassa og fá sér einn og einn mola til þess að hann endist lengur.
Bókin er að ég held mjög góð gjöf hvort tilefnið eru jól, afmælisdagur eða annað til að gleðja aðra. Hún einfaldlega er áfram í huganum og lofar komandi veiðisumar. Náttúrulýsingar og einlægni er styrkur bókarinnar og ef einhver hefur ást á viðfangsefninu þá er það hin eini sanni Bubbi Morthens. Til hamingju með bókina.
Bækur | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.11.2007 | 22:48
Haustþræðir
Vegna margra velunnara síðu minnar vil ég láta að vita af mér, en vegna veikinda og sjúkrahúsvistar hafa ekki verið færslur á síðuna frá því í byrjun sept. s.l. Ég vil þakka þeim sem líta inn og skoða gamlar færslur fyrir þolinmæði og áhuga. Þar sem enn um sinn verður frekar litið að gerast á síðunni set ég inn gamalt ljóð frá mér um haustið. Það nefnist Haustþræðir.
Haustþræðir
Þá leið þetta sumar
og söngurinn góði
því það lofaði reyndar allt,
en skyndilega hvarf það
og aftur var kalt;
mófuglar horfnir
en morgunsvalinn andaði stríður.
En rósin í garðinum
draup höfði sínu
er austan slagregnið
teygði runnans greinar
og haustið lagðist að
í garðinn og sálina,
en purpuralitaður himininn
málaði síðasta vanga sumarsins.
Ólafur H. Einarsson 1979
Bækur | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 15:15
Lokum fyrir þverun Lönguhlíðar á Miklabraut
Minni á bloggfærslu mína um að koma í veg fyrir þverun Lönguhlíðar á Miklabraut.
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/311399/
Umferðartafirnar hefjast stundvíslega klukkan 7:40 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2007 | 23:19
Gamlar minningar
Ég sá þig er minningarljóð sem ég samdi 2001. Það er tregi og eftirsjá í þessu eins og í lífinu. Best að ljóðmyndin tali sjálf.
Ég sá þig
Ég sá þig um daginn
þinn síðasta vinnudag
er stóðst þú við skugga gluggann
og sumarið var farið
af suðurgluggum sumra húsa.
Þú laust þínu höfði
lítið eitt í kjöltu þér,
en vagninn leið áfram hratt
hjá löngu förnum götum
sem mörkuðu sporin þín.
Ólafur H. Einarsson 2001
Bækur | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2007 | 19:38
Meira af Vatnsdalnum í Húnavatnssýslu
Stenst ekki mátið og verð að deila með ykkur fleiri fallegum myndum úr Vatnsdalnum. Jörundarfellið sem blasir við Flóðið er höfuðprýði sveitarinnar. Vatnsdalshólar með sýnu fallega líparíti. Í Másstaðaskriðum er mikið af jaspis, hrafntinnu, silfurbergi o.s.f.v. Fuglalíf er þar einstak. Á haustkvöldum og morgnum syngja hundruðin af álftum og gæsum. Það var erfitt að sofa á morgnana þarna, morgunsinfónían var byrjuð upp úr fimm. Allstaðar er sagan nálæg, sem er efni í mikla færslu. En látum myndirnar tala.
Hnjúkurinn og í fjarska ber Víðdalsfjallið.
Grímstunga í Vatnsdal, h.m. ber í Hjarðartungu sem er reist upp úr 1960.
Kirkjan að Undirfelli.
Hvammur í Vatnsdal. Er hægt að hugsa sér fallegra bæjarstæði.
Kunnuglegir fuglar í dalnum.
Eins og sjá má af þessum myndum hefur Vatnsdalurinn upp á mikið að bjóða.
Bækur | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)