6.6.2007 | 16:22
Reykjavíkurtjörn og gamlar minningar
Þá voru það hlýju hendurnar hennar mömmu sem færðu líf í kroppinn aftur. Sitjandi á eldhúsvaskinum með fætur ofan í emileruðu vaskafati til að fá líf í fæturna aftur. Þessu næst var andlitið þvegið, hárið greitt og svarti kollurinn glansaði. Heita kakóið, já það var eins og maður fyndi það renna um æðarnar fyrst út til handanna og kol af kolli. Höfgi lagðist yfir mig og öll þreytan sem hafði gleymst í leikjum dagsins kom yfir eins og holskefla.
Gamli dívaninn var fljótur að skila mér inn í draumalöndin. Þannig voru þessir dagar og margir í minningunni.
Ljóðið sem hér fylgir er fátækleg mynd af þessari tilveru, en fangar vonandi einhvern.
Reykjavíkurtjörn
Þú tjörn tendruð kvöldsins roða
titrandi báran brotnar við stein
táravatn allra andans goða
almennings óskalaug um betri heim.
Þar endur með öðrum einatt búa
einmenningar þar of um ráfa
flugvélar og aðrir farkostir um fljúga
fagurgljáfægðir bílar ríkar páfa.
Svo sofnar þú fagra tjörn
en svanir syngja um þinn draum
Krían sem kokreiðst hefur við börn
kápu sína hylur egg á laun.
En snöggt sem sofna þín yndi
og sælan umlykur þína sál
vaknar borgin búin sínu lindi
börnin helst af öllum skilja það mál.
Dag í þínu lífi þekkjum öll
þrekmiklir Stekkir berjast um völd
brauði er þar deilt og barnaköll
bragðbæta lífið fram á kvöld.
Á vetrum þú veitir og gleður
vetraríþróttir gáfu þér gildi
og stoltir standa ungir feður
starandi á börn sín fullir yndi.
Þú tjörn tendruð dagsins óð
tilveru okkar þú byggðir
við vorum börn og þú varst okkar ljóð
en vissum ekki um allar þínar dyggðir.
Ólafur H. Einarsson 1975.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál, Lífstíll, Ljóð, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt 7.6.2007 kl. 07:11 | Facebook
Athugasemdir
Ég man eftir samskonar skautadögum þegar maður skautaði frá morgni til kvölds orðinn helblár af kulda. Gaman að lesa minningarnar og ljóðið um Reykjavíkurtjörn er virkilega fallegt
Rúna Guðfinnsdóttir, 7.6.2007 kl. 09:11
Yndislegar minningar og ljóðið líka.
Marta B Helgadóttir, 8.6.2007 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.