17.2.2008 | 23:02
Fella ber kjarasamningana - skattamál ófullnægjandi
Nú er verið að birta á vef asi.is dæmi um taxtabreytingar. Í ljósi þessarar töflu er ljóst að óviðunandi er að samþykkja þessa samninga nema að persónuafsláttur hækki samhliða hækkun launa. Hækka á afsláttinn á næsta ári um 2000 krónur (árið 2009 umfram almenna verðuppfærslu). Síðan hækkar sambærilega árið 2010 og 2011. En kjarasamningur rennur út í nóv. 2010 ef ég hef tekið rétt eftir. Þannig mun stór hluti hækkunar núna renna í ríkissjóð í aukna skattheimtu vegna hærri launa. Á launatöflu sem birt á vef asi.is eru dæmi um taxta.
Árið 2007 hafði starfsmaður í ræstingu 121.317.- í laun. Hægt er að fara inn á vef ríkisskattstjóra og reikna skatta af launum í þar til gerðri reiknivél. Skattur af launum er 6.700 krónur núna eftir áramót t.d. útb. laun 1. feb. s.l.
Nýjustu laun ræstingarstarfsmannsins eru 139.317 krónur núna með þessum nýja kjarasamningi. Staðgreiðsla af þessum launum er 12.744 krónur. Nærri lætur að ríkissjóður fá helmingi hærri skatt af viðkomandi eftir hækkun. Þannig eru útborguð laun 114.928 krónur. Útreikningur gerir ráð fyrir 2% í séreignarsparnað og 3.286 í félagsgjald á mánuði.
Raunveruleg hækkun er 10.876 krónur.
Af ofansögðu veðrur ríkisstjórnin að leiðrétta þetta strax, því er ekki annað fært en að hafna kjarasamningunum. Það verður að koma til strax breyting á persónuafslætti til þess að gerlegt sé að styðja þennan kjarasamning. Ekki bara þessi 2000 kall heldur umtalsverða hærri upphæð.
Um aðgerðir ríkisstjórnarinnar má segja ýmislegt. Ég dreg t.d. stórlega í efa að bygging fél. leiguhúsnæðis og aukið fé í það skili sér. Það hefur verið nægjanlegt fé í þetta en sveitafélögin vilja ekki byggja þetta húsnæði og hafa ekki sótt um það.
http://www.rsk.is/reiknivelar/nidurstodur/vara_reiknivel_stadgreidslu_2.asp
vefur ASÍ http://asi.is/desktopdefault.aspx/tabid-2/19_read-972/
launataflan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2008 | 18:20
Breska ríkisstjórnin að þjóðnýta Northern Rock bankann
Breski fjármálaráðherrann var í dag að tilkynna um þjóðnýtingu á Northern Rock bankanum. Eins og kunnugt er þá lenti bankinn í erfiðleikum vegna húsnæðislána sem voru veitt í Bandaríkjunum með vafasömum tryggingum. Ríkisstjórnin breska neyðist til að gera þetta þar sem einkabankar voru ekki tilbúnir að taka við nema með afarkjörum, tap skattgreiðenda hefði því orðið meira. Þetta er tímabundin yfirtaka og verður bankinn aftur seldur á alm. markaði þegar aðstæður á fjármálamörkuðum hafa breyst til batnaðar.
Þetta vekur upp spurningar um stöðu íslensku bankanna og hvort ríkissjóður verði á komandi misserum koma þeim til hjálpar. Enda þótt vandinn sé annar en hjá Northern Rock bankanum þá er þetta hluti af alþjóðlegri kreppu sem er í uppsiglingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2008 | 16:09
Gamla varaaflsstöðin við Elliðaár að víkja ?
Visir.is segir frá því í gær ( 15. feb. ´08 ) að Landsvirkjun hefur fært Reykjavíkurborg til fullrar eignar varaaflsstöðina við Elliðaárnar. Veiðimenn sem veitt hafa þarna lengi kannast við þetta hús. Varaaflstöðin var gangsett árið 1948 og er því orðin að hluti af þessu umhverfi. Um tíma var verið að tala um að laga húsið og fá það listmönnum til notkunar. Ég heyrði að eitthvað væri um spilliefni (asbest) í húsinu. Í gær 15. feb. fékk borgarstjórinn nýjasti, Ólafur F. Magnússon afhenta lykla og þrjár spildur í Elliðaárdal alls 15. þúsund fermetrar. Borgin tekur að sér að rífa húsið, í stað landsins sem fylgir með, en þau eru hluti af útivistarsvæði Elliðaársdals. Húsið hefur verið í vanrækslu og var málað fyrir nokkrum árum ef ég man rétt. Mér hefur alltaf þótt þetta formfagurt hús hvernig sem á því stendur. Það má alveg sjá þarna fyrir sér aðstöðu fyrir t.d. listamenn sem nýlega urðu fyrir skakkaföllum á Korpúlfsstöðum. Væri þetta hús lagað og málað gæti þetta verið hið fallegast hús, á sinn hátt !
En trúlega eru fleiri á því að rífa þetta hús, þannig er tíðarandinn. Læt hér til gamans myndir með af þessu húsi, sem hefur verið bakgrunnur í mörgum veiðiferðum í gegnum árin í Elliðaánum hjá mér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.1.2008 | 15:11
Stjórnmálin og valdaskiptin í Reykjavík - húsfriðun
Mánuðum saman hef ég skrifað hér á blogginu um nauðsyn þess að friða sem mest af eldri götumynd Laugavegs og reyndar um Lækjargötu og verndun miðbæjarins. Ég er sannfærður um að það eru að verða straumhvörf í umræðunni um verndun gamalla hús í miðbæ Reykjavíkur. Innlegg Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Silfur Egils hafði þar mikil áhrif. Torfusamtökin hafa einnig verið þar áhrifa mikil ásamt einstaklingum sem hafa verið að fjalla um þessi mál. Fólk er að verða meira meðvitað um að þrátt fyrir allt ríkidæmið, þá eru húsin sem byggð hafa verið á fyrriparti síðustu aldar arfleið okkar og menningararfur. Við verðum að koma fram af virðingu við þessa arfleið og kannast við hana þótt hún sé ekki fólgin í glæsihöllum. Bárujárnið, lág hófstemmd hús sem sum hver voru og eru mjög falleg og ríkulega skreytt.
Ég treysti vel Reykjavíkurborg til að standa vel að uppbygginu húsanna við Laugaveg og gera það að myndarskap eins og t.d. húsin við Aðalstræti.
Stjórnmál snúast um framfarir og breytingar. Fólkið sem er á sviðinu hverju sinni, er þar að vinna að hugsjón og góðum vilja. Í eðli sínu eru það einkenni lýðræðis að fram fer eins konar málamiðlun oftast, ekki algilt. Ég ber virðingu fyrir öllu þessu fólki sem er að fórna tíma sínum og kröftum. Neikvæða myndin sem birtist okkur í fjölmiðlum síðust daga er afskræming þessa veruleika. Í mínum huga skiptir það ekki höfuð máli hverra flokka þetta fólk er, það er allavega að vinna að framgangi samfélagsins. Það má ekki gleymast. Fólkið sem situr heima og hefur skoðanir, en hefur aldrei fórnað neinum tíma til þess að breyta samfélaginu; kröfur þess verða að taka mið af því. Stjórnmálin verða aldrei betri en það fólk sem tekur þátt í þeim. Til að breyta samfélaginu verða því fleiri að stíga fram á sviðið og breyta því til batnaðar.
Verndun gamalla húsa og breytingar á skiplagi eru partur af því. Eitt brýnasta verkefni nýja meirihlutans er að taka upp deiliskipulagið frá tíð R- listans og koma í veg fyrir að ekki endurtaki sig sama ruglið og verið hefur um Laugaveg 4 - 6. Fella út leyfið til að rífa fleiri gömul hús við götuna.
Hús Alþingis dæmi um vel heppnaða endurgerð.
Fallegt handverk sem gleður augað.
Þetta er dæmi um kofa sem margir vilja rífa. Sjáið hvað hægt er að gera húsin fallega upp.
Hér á bloggsíðu minni eru magar greinar um verndun gamalla húsa, vinsamlega skruna niður síðunar sem eru orðnar nokkuð margar. Njótið lestursins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.1.2008 | 17:02
Geta stjórnvöld boðið sig fram til Öryggisráðs SÞ eftir dóm Mannréttindanefndar SÞ ?
Hvernig má það vera að íslensk stjórnvöld sem bjóða sig fram til Öryggisráðs Sameinuðuþjóðanna geti hundsað úrskurð einnar af lykilnefndum þeirrar stofnunar ? Eins og kunnugt er hefur Mannréttindanefnd Sameinuðuþjóðanna úrskurðað um að brotið hafi verið á rétti tveggja sjómanna og þeim skuli dæmdar bætur og þeim tryggður réttur að auðlindinni.
Er það trúverðugt að stjórnvald sem brýtur á mannréttindum geti verið í framboði til Öryggisráðs SÞ ? Teljið þið að ríkisstjórnir sem hafa farið með völd hér væru tilbúnar að styðja slíkt framboð ?
Því hefur verið haldið fram í umræðu að okkur beri ekki að taka niðurstöðuna mjög alvarlega og hún sé ekki þjóðréttarlega bindandi. Ýmsir talsmenn samtaka sem hafa hag að því að viðhalda þessu kerfi hafa látið duglega í sér heyra og talið allt til foráttu að þessu verði breytt þrátt fyrir úrskurðinn. Ég vona bara að það verði ekki hlutverk núverandi ríkisstjórnar að senda eins konar bréf um það að þetta verði skoðað með tilliti til athugasemda Mannréttarnefndar.
Ef ríkisstjórnin dregur ekki framboð sitt til baka, verður hún þá ekki eins og aðrar ríkisstjórnir í þessum heimi sem troða á mannréttindum og fara sínu fram. Ríkisstjórnin verður fyrst að koma þessu í lag, áður en framboð Íslands til Öryggisráðs SÞ verður trúverðugt. Þá tel ég rétt að lögmenn þessara sjómanna kynni þátttökuþjóðum úrskurðinn, þannig að ákvörðun ríkisstjórna annarra landa um kosningu Íslands í Öryggisráðið verði upplýst ákvörðun.
Bloggar | Breytt 23.1.2008 kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2008 | 21:44
Er skoðanakönnun Fréttablaðsins um hvort rífa skuli húsin við Laugaveg 4 - 6 marktæk
Er lýðræðið það fullkomið á Íslandi að skoðanakönnun Fréttablaðsins um það hvort rífa skuli húsin við Laugaveg 4 - 6 geti leit til þess að húsin verði rifin ? Eða áskorun SUS til menntamálaráðherra um að hafna tillögu húsfriðunarnefndar ?
Ekki man ég eftir því fyrr að stjórnmálasamtök ungs fólks hafi það á stefnuskrá sinni að rífa gömul hús fyrr en nú. Þetta er framtíðafólkið sem ætlar að taka við á stjórnmálasviðinu á þessari öld. Það er engin furða þótt maður verði nærri kjaft stopp. Þetta er unga fólkið sem alið er upp við tölvur, hefur fengið nánast allt í sýnar hendur til æðis og klæðis. Helsta markmið þess er að standa vörð um að rífa þessi gömlu hús sem í heila öld hafa staðið þar og þjónað samborgurum okkar. Verið upphaf að götumynd Laugavegs og eru greipt í huga allra þeirra sem komnir eru til vits og ára.
Hvað varðar samþ. húsfriðunarnefndar þá er það fullkomlega á hennar sviði að hafa skoðun á því hvað byggt er að húsinu á horni Laugavegs og Skólavörðustíg sem er friðað. Þetta nýja hótel sem búið er að teikna á lóðina Laugaveg 4 - 6 er allt of há bygging og mun skerða sólarbirtu á gangstéttum götunar þar sem húsið liggur. Þá er þetta hús úr öllum takt við hornhúsið friðaða. Það kæfir þetta gamla hús. Þess vegna eru a.t.h. húsfriðunarnefndar fullkomlega eðlilegar og réttmætar, um það er engin vafi í mínum huga. Byggingarnefnd getur ekki samþ. hús á reitinn ( Laugaveg 4 - 6 ) nema að taka tillit til þeirra sem fara með friðun húsa í þessu landi. Eins konar handvön er í þessu ferli hvað þetta varðar hjá byggingarnefnd.
Ég vil skora á menntamálaráðherra að samþ. að húsin verði friðuð. Unga fólkið í SUS mun bara byggja sinn nýja Laugaveg í nýjum hverfum og börn og barnabörn þess mun þá í anda foreldra sinna kjósa um það á stjórnmálafundum hvort eigi að rífa verkin þeirra og afmá fyrir framtíðinni. Eða var þetta ef til vill bara venjulegur bjórfundur í svona samtökum kostað af einkafyrirtæki og það varð að koma eitthvað merkilegt frá fundinum ?
Loks tel ég það ekki hlutverk fjölmiðla að nota skoðanakönnun á þennan hátt sem gert var í Fréttablaðinu. Það er hægt að spyrja hvort þú styður tiltekin stjórnmálaflokk ( þar er fólk sem kemur og fer ). En þegar verið er að fjalla um gömul hús sem ekki er hægt að endurnýja þegar búið er að rífa þau og farga öllu efni húsanna. Aldrei verður hægt að endurlífga slík menningarverðmæti þau eru glötuð um alla framtíð.
Þetta eru sárin sem skilin eru eftir
í götumynd Laugavegs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.1.2008 | 17:51
Það er enn hægt að bjarga húsunum við Laugaveg 4 - 6
Morgunblaðið í dag birtir frétt af rausnarlegu tilboði um endurbyggingu húsanna við Laugaveg 4 - 6 á forsíðu. Anna Sigurlaug Pálsdóttir heitir þessi kona sem býður svo höfðinglega. Ég verð að játa að hjartað tók kipp þegar ég heyrði af þessu tilboði. Hugsunin var, já núna verður þessum húsum borgið. Við lesturinn í Morgunblaðinu og eftir að hafa heyrt í borgarstjóranum unga þá var þessi gleði mín minni. Er það þá þannig þrátt fyrir þetta höfðinglega tilboð að ekki verði mögulegt að endurbyggja húsin á Laugaveginum vegna þess að búið er að klúðra öllu þessu máli frá upphafi ? Nú reynir á nýja meirihlutann í Reykjavík að sýna að hann sé þess megnugur að leiðrétta þetta mál og fella úr gildi skipulagstilögunar frá R listanum sem kom þessu öllu af stað. Það á skilyrðis laust að varðveita sem flest hús við Laugaveginn þannig að götumyndin haldist óbreytt um næstu framtíð. Þetta verður vin í steinsteypu og glersamfálaginu sem er að verða til á þessari öld. Menningararfur. Allt tal um kofa og rífa kofana við Laugaveginn, er ekkert annað en að hafna þeirri arfleið sem við höfum vaxið upp frá og skilað hefur okkur auðlegðinni sem við búum nú við .
Ég vil þakka sérstaklega þetta rausnarlega boð Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur hvort það verður endurbyggt á staðnum eða húsin flutt og endurbyggð í Hljómskálagarðinum eins og borgarstjórinn ungi talaði um. Þetta mál er prófsteinn á nýja meirihlutann í borginni. Þá vil ég minna á glæsilega lausn sem varð á málum húsanna við Austurstræti. Það verður að ná þessari lóð aftur ( Laugaveg 4 - 6 ) með kaupum eða eignaupptöku vegna hagsmuna almennings. Borgarfulltrúar hvar í flokki sem þið eruð komið þessum málum í lag !
Bloggar | Breytt 9.1.2008 kl. 08:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2008 | 21:36
Laugavegur 4 - 6 enn og aftur
Tíðindi gærdagsins eru bæði sorg og gleði vegna húsanna við Laugaveg 4 - 6 sem til stóð að rífa í gærmorgun. Hin nýskapaði borgarstjóri sem vann að því að búa til aftökulista húsa við Laugaveginn ( ásamt öðrum hagsmunaaðilum í tíð R- listans ) og var forsendan fyrir rifi og uppbygginu nýrra byggingar hótels, hann sá að sér. Fyrrverandi meirihluti sjálfstæðismanna vísaði til þessarar skipulagstilögu þegar heimilað var að byggja á reitnum að nýju og var þar með búin að fyrra sig því að eyðileggja sögulega mynd götunnar.
Það að flytja húsin í Hljómskálagarðinn er á margan hátt skemmtileg hugmynd sem Hrafn Gunnlaugsson er höfundur að. Ef ég man rétt þá kom þetta fram í mynd sem hann gerði um þróun borgarinnar um hugmyndir sýnar, ofhlaðin háhýsum og mikilmennsku. Eina sem ég sé við þessa hugmynd er að í framtíðinni væri hægt að flytja húsin aftur til síns fyrri staðra. Ég hef þá trú að í framtíðinni verði götumynd Laugavegar verðmæt vegna margbreytileika og hóflegar húsa með sér íslenskan byggingarstíl eins og bárujárnið. Eins og ég hef lýst hér fyrr í skrifum mínum um friðun húsa við Laugaveginn, möguleikum og sóknarfærum til að skapa eldri húsum nýjan tilgang. Vísa ég því til þeirra skrifa og set krækjur inn sem ekki hafa tíma til að skruna um bloggsíðuna.
Ég hef verulegar áhyggjur af að síðasti sólarbletturinn við Laugarveginn sé að hverfa með nýju byggingunni sem verður reist þar. Afskaplega er notalegt að hægja á ferð sinni nánast á öllu tímum ársins þegar sólar nýtur við og njóta ylsins og birtunnar sem hefur verið þarna. Á myndum sem ég set hér inn með þessum hugleiðingum má glögglega sjá hvað birtan er þarna mikilvæg. Myndirnar eru teknar á þeim tíma þegar sól er hæst á lofti og birtan flæðir um alla skuggabletti.
Hótelbygging á þessum stað er slys. Ekkert rými er til að taka við ferðamönnum og rútum sem spúa díselreyk yfir umhverfið, þar sem gangstéttin teppist meðan verið er að hlaða töskum ferðamanna á götuna o.s.f.v.. Það er einfaldlega ekki rými fyrir hótel við Laugaveginn enda þótt búð sé að byggja eitt ofar við götuna. Gatan á að vera miðstöð þjónustu og menningar en ekki hótelgata.
Þannig verða þessi hús trúlega flutt á dauðadeildina út á Granda eins og ég hef kallað það.
Þar geta þau næstu misserin norpað í norðannepjunni, slitin úr öllu samhengi við umhverfi sitt.
Endurbygging húsanna í Hljómskálagarði er vandasöm og verður dýr, en ég treysti borginni til að standa að því og gera það vel, það sanna húsin við Aðalstræti.
Betra væri að þetta hefði aldrei orðið og húsin fengið að vera áfram á sínum reiti.
Takið eftir hvað skugginn breiðir sig út á götuna. Nýja húsið verður í sömu hæðarlínu með mæninn og gula húsið á myndinni. Myndin er tekin þegar sól er hæst á lofti. Það er auðvelt að sjá fyrir að nýja húsið mun mynda skugga á gangstéttina handan götunnar mestan part ársins.
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/284920/
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/292937/
Myndirnar eru teknar 15. júlí 2007 kl: 13:54.
Bloggar | Breytt 9.1.2008 kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.1.2008 | 21:18
Gleðilegt nýtt ár
Gleðilegt nýtt ár !
Óska þeim er lesa bloggsíðu mína og bloggvinum árs og friðar. Læt með ljósmyndir frá áramótum.
Einnig hér fylgir gamalt ljóð um áramótin, frá mér sem ég gerði um ármótin 1975-76.
Áramótakveðja
Árs og friðar árna ég
árin heilla líða
veraldarinnar vandratað fé
vegsemda erfitt að bíða.
Trú og tilbeiðsla göfgi þig
tárin gullnu dvína
þá er þroski eflist við
þrautir hverfa og pína.
Lifðu svo lengi og vel
láttu andann vaxa
bróðurhug já bræðraþel
bæti allar heimsins axa.
Ólafur H. Einarsson 1975
Skotið í rokinu
Álfar áttu líka sín áramót.
Bloggar | Breytt 2.1.2008 kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.12.2007 | 13:56
Gleðileg jól
Óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og þakka ykkur mörgum sem hafa
heimsótt bloggsíðu mín á liðnum mánuðum. Megi friður og kærleikur
jólanna fylgja ykkur. Guð blessi ykkur öll !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2007 | 17:43
Veiðisögurnar hans Bubba Morthens - nýja bókin
Nýlega var mér gefin bókin hans Bubba Morthens með langa bókartitlinum : Að kasta flugu í straumvatn er að tala við Guð. Þegar ég heyrði fyrst af þessari bók þá skellti ég í góminn, hvernig ætli kappinn sé á ritvellinum ? Nú, eftir að ég eignaðist bókina, lagðist ég yfir hana og ég verð að segja að hún kemur á óvart. Þá er rétt að taka fram að ég er með ólæknandi veiðidellu líkt og höfundurinn.
Bókin er mjög skemmtileg, stuttar sögur með ljóðrænum texta; nákvæmlega eins og mér finnst að það eigi að vera. Það er nefnilega ljóðrænt að vera að veiða við ár eða vötn í okkar blessaða landi. Ég hef orðað það þannig að verða drukkinn af landinu. Þetta er held ég líka að sé upplifun Bubba Morthens, á hans hátt. Þetta eru fallegar náttúru upplifanir og skemmtilegar sögur af fólki og veiðifélögum höfundar.
Fyrir þá sem enn halda að veiðimennska sé bara ómerkilegt dráp þá ætti þessi bók að opna augun fyrir því gagnstæða. Ég held að bókin skilji ekki við neinn ósnortinn og hreint út sagt er hún yndisleg. Það er því við hæfi að óska Bubba til hamingju með þessa bók. Það er aðeins ein saga í þessari bók sem mér finnst ekki ríma í þessum ljóðræna stíl. Silja Aðalsteinsdóttir er ritstjóri bókarinnar og er það trúleg styrkur verksins að hún er þar með.
Ég vil hvetja Bubba Morthens til að skrifa meira í þessum stíl, fleiri veiðibækur. Eftir að ég hafði lesið bókina var ég með heitstrengingar, um að hnýta mikið af flugum og nota veturinn betur til að vera undirbúin fyrir næsta sumar. Af þessu leiðir að bókin hefur virkað á mig. Þá vil ég ráðleggja þeim sem lesa bókina, af minni reynslu að lesa svona tvær sögur í einu. Þetta er eins og eiga konfektkassa og fá sér einn og einn mola til þess að hann endist lengur.
Bókin er að ég held mjög góð gjöf hvort tilefnið eru jól, afmælisdagur eða annað til að gleðja aðra. Hún einfaldlega er áfram í huganum og lofar komandi veiðisumar. Náttúrulýsingar og einlægni er styrkur bókarinnar og ef einhver hefur ást á viðfangsefninu þá er það hin eini sanni Bubbi Morthens. Til hamingju með bókina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2007 | 11:18
Dagur íslenskrar tungu 16. nóv.
Dagur íslenskrar tungu er haldinn eins og flestir ættu að muna 16. nóvember. Það hefur verið lengi skoðun mín og trúlega fleiri að frekar ætti að halda upp á dánardaginn en fæðingardaginn. Þetta stafar af því að skólar eru að ljúka starfsvetri sínu og oft á tíðum er mikið los í starfi grunnskólans. Ekki er átt við þetta í neikvæðri merkingu. Þá eru dagarnir notaðir í vetfangsferðir o.s.f.v.. Væri ekki betra að skerpa á mikilvægi tungunnar í andrúmslofti vorsins með uppákomu sem væri því tengd. Ég læt spunameistarana um að fylla í eyðurnar. Náttúra landsins er að vakna af vetrardvala og farfuglarnir komnir til landsins. Bjarkirnar farar að teygja litla sprota inn í sumarið. Er ekki líklegra að við slíkar aðstæður mætti gleðja gamla náttúrufræðinginn betur, en við myrkur nóvembermánaðar.
Ég skora á þá sem fylltu reykmettað herbergi þegar þetta var ákveðið að skipta um skoðun og fá skólana betur inn í þetta starf í framtíðinni.
Herrans árið 1998 var fyrsti dagurinn sem var helgaður minningu Jónasi Hallgrímssyni og af því tilefni gerði ég dálítið ljóð á þeim tíma. Ég læt það fylgja með þessari hugleiðingu um íslenska tungu.
Dagur íslenskrar tungu
16. nóvember
Í dag er dagur íslenskrar tungu
og dauður ertu Jónas minn
á fjörukrá hér forðum ungur
með fjaðurpennann og hattinn þinn
þú lærðir þar ljóta siði
er lagði þig fyrir miði
göróttur var og göldrum búin
en gáfa þín var líka snúin.
Ljóðin þín líka eftir léstu
lofað sé þetta verk þitt
og þökk sé þjóð með festu
sem þekkir í þér verkið sitt
og kallar á þig í ákalli bragsins
að kenna og fræða vort mál
sem vonandi vekur aftur til dagsins
vonina að gleðja þína fornu sál.
Ólafur H. Einarsson 1998
Jónas andaðist í Danmörku 26. maí 1845. Blessuð sé minning hans.
Þessi færsla var birt 26. maí s.l.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.11.2007 | 22:48
Haustþræðir
Vegna margra velunnara síðu minnar vil ég láta að vita af mér, en vegna veikinda og sjúkrahúsvistar hafa ekki verið færslur á síðuna frá því í byrjun sept. s.l. Ég vil þakka þeim sem líta inn og skoða gamlar færslur fyrir þolinmæði og áhuga. Þar sem enn um sinn verður frekar litið að gerast á síðunni set ég inn gamalt ljóð frá mér um haustið. Það nefnist Haustþræðir.
Haustþræðir
Þá leið þetta sumar
og söngurinn góði
því það lofaði reyndar allt,
en skyndilega hvarf það
og aftur var kalt;
mófuglar horfnir
en morgunsvalinn andaði stríður.
En rósin í garðinum
draup höfði sínu
er austan slagregnið
teygði runnans greinar
og haustið lagðist að
í garðinn og sálina,
en purpuralitaður himininn
málaði síðasta vanga sumarsins.
Ólafur H. Einarsson 1979
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2007 | 21:44
Aðalstræti 10 endurbygging til sóma - rómantík í miðbænum
Fyrir skömmu var ég á ferðinni í Aðalstræti í Reykjavík og var að skoða húsin sem Minjavernd hefur verið að endurgera og byggja ný. Ég fór að skoða nýlega opnaða húsið að Aðalstræti 10 sem var hluti af Innréttingum Skúla Magnússonar landsfógeta, en talið er að húsið hafi verið byggt 1762. Þetta er samt eitthvað á reiki ef ég man rétt svo ég vitni i Árna Óla hin eina sanna.
Það er gaman að sjá hvað hægt er að gera þessi gömlu hús glæsileg þótt að þau hafi verið byggð trúlega af vanefnum. Ljóst er að hvar sem maður skoðar, endurspeglar handverkið að hér hefur verið unnið að alúð. Minjavernd eignast húsið til ráðstöfunar næstu 35 árin, en af þeim tíma liðnum fær borgin húsið aftur til sín.
Á neðri hæð hússins er Reykjavíkurborg með sýningar og kynningarrými. Efrihæð hússins ( undir súð ) er aðstaða fyrir Handverk og hönnun. Inni er líkan af Grjótaþorpi og ljósmyndir mjög forvitnilegar. Einstaklega gaman að staldra þar við og hverfa aftur í tímann við dempað ljósið í loftinu.
Byggt er við húsið að aftan ( inni í lóðina ) nýtt lítið hús og er það tengt saman með glerbyggingu sem tekist hefur mjög vel að fella að þessu gamla húsi og gefa því tilfinningu um opið rými. Hurðin inn í rýmið gefur þessu virðulegan blæ. Ég vil endilega hvetja sem flesta til að skoða þetta og njóta. Þá er Íslenska hönnunarverslunin með fallega muni til sölu. Því miður hafði ég ekki tíma til að skoða það nánar, en langar til að fara fljótlega aftur og skoða þetta enn betur. Sjón er sögu ríkari.
Ljóst er að þessu húsi hefur verið sýndur einstakur sómi með endurgerðinni. Ekki skemmir að vita að þetta verður vonandi aldrei aftur ölduhús þar sem hin görótti drykkur er viðhafður. Ég held að þetta hús hafi verið í bráðri eldhættu þegar rekinn var þarna ölstofa eða hvað það var kallað. Loks vil ég óska öllum sem að þessu hafa komið og gert þetta að veruleika til hamingju með einstaklega vel heppnað verk. Framtíðin mun lofa verkið enn frekar og ætti að vera öllum þeim sem hamast við að tala um að rífa gömul hús í bænum til áminningar.
Gaman að sjá hvernig þakljórarnir falla að þaki hússins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.9.2007 kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2007 | 15:15
Lokum fyrir þverun Lönguhlíðar á Miklabraut
Minni á bloggfærslu mína um að koma í veg fyrir þverun Lönguhlíðar á Miklabraut.
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/311399/
Umferðartafirnar hefjast stundvíslega klukkan 7:40 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2007 | 22:35
Lokum fyrir þverun Miklubrautar um Lönguhlíð - umferðaröngþveitið
Umferðarteppan á morgnana á Miklubraut hefur verið talsvert til umræðu í fjölmiðlum undanfarið af skiljanlegum ástæðum. Ég er einn af mörgum sem er að keyra í röðinni niður í bæ þetta á 15 - 40 km hraða og stundum hægar. Af skiljanlegum ástæðum er ég orðin þeirrar skoðunar að loka verði fyrir þverun á gatnamótum Lönguhlíðar ( sjá mynd ).
Með þeirri aðgerð væri búið að losa stífluna sem er aðallega á þessum gatnamótum. Þannig væri viðstöðulaus umferð frá horni Kringlumýrar og Miklubrautar niður að ljósunum hjá Umferðarmiðstöðinni.
Því vil ég skora á umferðaryfirvöld í Reykjavík að skoða þennan möguleika. Stærsti flöskuhálsinn á Miklubrautinni er á þessum gatnamótum, en umferðin sem kemur af sunnaverðri Kringlumýrarbraut safnast frá gatnamótum Lönguhlíðar upp að gatnamótunum Kringlumýrabrautar og Miklubrautar. Þegar ljósin kvikna fyrir umferð niður Miklabraut stoppa nánast allt vegna þess að þessi spotti ber ekki fleiri bíla.
Með því að loka fyrir þverun á Lönguhlíðinni mun umferð verða miklu greiðari. Trúlega verður þetta til óþæginda fyrir marga, en göturnar bæði norðan við og sunnan við Lönguhlíð verða miklu rólegri húsagötur eftir þessa breytingu og geta skapað meira næði þar á kvöldin þegar umferð minnkar.
Lokum fyrir þverun á Lönguhlíð og losun um umferðarstífluna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.9.2007 | 18:03
Glæsileg verðlaunatillaga um deiliskipulag í Kvosinni
Fimmtudaginn 6. sept. s.l. voru kynntar verðlaunatilögur úr samkeppni um deiliskipulag í Kvosinni. Ég er sérstaklega ánægður með verðlaunatillöguna og get ekki annað en hrósað Hönnu Birnu og Vilhjálmi borgarstjóra með að hafa valið þessa tillögu. Hún fellur mjög vel að þeim hugmyndum sem ég hef viljað fara með uppbygginu á þessu svæði þ.a.s.e.g. varðveita sem mest mynd húsanna þarna. Auðvita eftir bruna verður ekkert eins og áður og ný hús bera væntanlega mynd af því. Sérstaklega hugnast mér að hugmyndin um að flytja gamla Biskupshúsið í Lækjagötuna. Hinsvegar tel ég það ekki þjóna neinum tilgangi að flytja húsið frá Árbæjarsafni, enda gerir tillagan ráð fyrir að byggja eina hæð undir húsið og lyfta því.
Miklu nær er að teikna nýbyggingu sem notar ytra útlit og húsgerð og byggja á staðnum. Það er einfaldlega ódýrara, sem gefur götunni aftur þennan gamla svip.
Lækjargata 4 var reist árið 1852 það var þýskur timburmaður, G. Ahrentz sem byggði það. Helgi biskup Thordarsen keypti húsið og var húsið síðan nefnt eftir þetta Biskupshús eins og ég man eftir. Þess vegna er túnið nefnt Biskupstún sem ég held að sé að gleymast þar sem styttan af Séra Friðrik er og taflið fræga frá vinstri meirihlutanum ( 1978 ef ég man rétt ). Lækjargata 4 var meðan Helgi biskup bjó þar eitt mesta og virðulegasta höfðingjasetur í bænum. ( Heimild Sagt frá Reykjavík, Árni Óla bls. 54 - 57 ).
Ég vil hvetja Margréti Harðardóttur arkitekt og hópinn allan sem vann að þessari tillögu til að skoða vel þann möguleika að reisa þarna nýtt hús og í gömlum anda. Húsið er orðið gróið í Árbæjarsafni og á sinn tilverurétt þar nú og erfitt að slíta það upp enn eina ferðina. Sjáið hvað vel hefur tekist til með húsin í Aðalstræti eins og Fjalaköttinn.
Þá er að sjá að opna eigi lækinn aftur að hluta og setja tré með götunni. Þetta getur orðið mjög skemmtilegt og á eftir að gefa götunni nýja ásýnd. Reyndar vantar á að kynna tillöguna fyrir alm. enda þótt það hafi verið gert í fjölmiðlum mjög vel. Ég vil geta skoðað þetta með eigin augum, enda gerði ég mér ferð í Ráðhúsið í dag en þar var ekkert í þá veru.
Þegar þessi hugmynd var sett á koppinn hafði ég mínar efasemdir um keppnina og var hræddur um að fallið yrði í þá gryfju að byggja gler steinkumbalda í anda ofvitans ( Iðuhúsið ) í Lækjargötu.
Eins og þetta blasir við nú þá er ég mjög sáttur við þessa útkomu og ég hlakka til að fylgjast með áframhaldinu. Það eru spennandi tímar framundan með þennan bæjarhluta og vonandi er að verða vitundarvaknig fyrir því að varðveita gömul hús aftur.
Bloggar | Breytt 17.9.2007 kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2007 | 22:15
Kynjamyndir í Almannagjá á Þingvöllum
Í síðustu viku var ég á fallegum degi á Þingvöllum. Gekk niður Almannagjá og rakst á þennan steinrunna víking í berginu. Hann var með hrút á baki. Langspilið trónir upp. Þá ber hann steðja og físibelg. Hjálmurinn hangir niðri. Kallinn er vel hærður og horfir í norður að ég held. Alltaf er hægt að sjá út kynjamyndir í íslensku landslagi. Langar að kynna ykkur fyrir þessum risa. Annars veit ég ekki hvað þessi tiltekni staður er kallaður. Ég tel rétt að nefna hann Ólafur víkingur fyrst ég var fyrstur til að finna kallinn eftir þúsundir ára.
Myndin hér að neðan sýnir hvernig þetta lítur svona fyrir venjulega skynjun.
Bloggar | Breytt 7.9.2007 kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.8.2007 | 18:40
Aftökulisti R - listans ber árangur gömlum húsum fórnað
Það ætlar að ganga eftir sem ég hef lýst hér áður á bloggsíðunni minni. Nýi meirihlutinn í Reykjavík notar listann sem skálkaskjól. Jafnframt húsin við Lækjargötu og Austurstræti falla undir þann gjörning. Nú er löngu orðið ljóst hvað þetta frumhlaup fv. R listans var vanhugsað. Áður en varir erum við búin að tapa hluta af byggingarsögu okkar og menningarminjum. Húsin við Laugaveg eru afskræmd útlitslega séð og hefur ekki verið sýndur sá sómi sem hægt er að gera. Takið eftir hornhúsinu við Laugaveg og Skólavörðustíg. Þannig geta gömul hús litið út. Nýríka kynslóðin sem fer nú fram í krafti græðgi, henni er ekkert heilagt. Hótel sem stendur til að byggja á þessum stað passar ekki inn í þessa mynd. Hvernig á að taka á móti ferðahópum t.d. 50 manna rúta að losa farþega og farangur á þessum þröngu gangstéttum ?
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/284920/
og meira tengt þessum málaflokk á síðunni.
Borgarráð samþykkti niðurrif húsa við Laugaveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2007 | 23:19
Gamlar minningar
Ég sá þig er minningarljóð sem ég samdi 2001. Það er tregi og eftirsjá í þessu eins og í lífinu. Best að ljóðmyndin tali sjálf.
Ég sá þig
Ég sá þig um daginn
þinn síðasta vinnudag
er stóðst þú við skugga gluggann
og sumarið var farið
af suðurgluggum sumra húsa.
Þú laust þínu höfði
lítið eitt í kjöltu þér,
en vagninn leið áfram hratt
hjá löngu förnum götum
sem mörkuðu sporin þín.
Ólafur H. Einarsson 2001
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)