Færsluflokkur: Bloggar
25.1.2009 | 23:16
Stjórnarráðið og mótmælendur í janúar 2009
Ég átti leið fram hjá Stjórnarráðinu í vikunni s.l. Það var undarlegt að sjá mannfjöldann sem var á vellinum framan við húsið og lögregluna raða sér framan við húsið. Glymjandi hávaði frá pottum og kirnum og öskur mómælenda. Smelti nokkrum myndum á símann minn og hvarf af braut. Þegar ég hafði flutt myndirnar inn í tölvuna var sem ein myndin væri greypt í huga minn. Það var einhver stemming sem er í einni myndinni, sem erfitt er að koma í orð. Fyrir utan janúar birtuna og þetta undarlega leiksvið stjórnmála og mannlífs, þá stóð Hannes Hafstein í sinni stóísku ró, fyrsti Íslands ráðherrann og lögreglan ábúðamikil sem varði húsið.
Gamla tukthúsið, þar sem yfirvaldið tuktaði mörlandann til hér forðum var orðið að fangelsi ríkisstjórnarinnar. Lögreglan vaktaði framkvæmdavaldið í dýflissunni. Þannig hafði alþýða landsins snúið á hið veraldlega vald og var nú sinn eigin fangi - sjálfviljug að leggja grunnin að Brimarhólms vist sinni. Og gamli íslands ráðherrann og skáldið stóð eins og steinrunninn í hinu formaða efni. Ósjálfrátt fór um hugann ljóðið ,, Stormur " líkt og elding sem nær jarðsambandi.
STORMUR
Ég elska þig, stormur, sem geisar um grund
og gleðiþyt vekur í blaðsterkum lund,
en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
og bjarkirnar treystir um leið og þú þýtur.
Þú skefur burt fannir af foldu og hól,
þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól,
og neistann upp blæs þú og bálar upp loga
og bryddir með glitskrúði úthöf og voga.
Þú þenur út seglin og byrðinginn ber
og birtandi, andhreinn um jörðina fer;
þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur
og lífsanda starfandi hvervetna vekur.
Og þegar þú sigrandi ' um foldina fer,
þá finn ég , að þrótturinn eflist í mér.
Ég elska þig, kraftur, sem öldurnar reisir,
ég elska þig, máttur, sem þokuna leysir.
Ég elska þig, elska þig, eilífa stríð,
með ólgandi blóði þér sögn minn ég býð.
Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður;
hugur minn fylgir þér, djarfur og glaður.
Þessi undarlega mynd sem er í huga mínum, hefur haft mest áhrif á mig af öllu því stríði sem háð er á götum Reykjavíkur þessa daganna. Vonandi tekst okkur að ná áttum og niðurlagið í síðast ljóðinu hér að ofan verði sá eldmóður sem blæs þjóð okkar von.
,, Ég elska þig, elska þig, eilífa stríð
með ólgandi blóði þér söng minn ég býð ".
Lifið heil !
* Hannes Hafstein er höfundur ljóðsins STORMUR
Bloggar | Breytt 20.11.2009 kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.12.2008 | 17:31
Jólakveðja
Ágætu lesendur, ég óska ykkur gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári.
Þakklæti til ykkar sem lesið bloggsíðuna mína og megi komandi ár þrátt fyrir það sem undan er gengið í landsmálum, verða ykkur til gæfu og gleði. Guð blessi ykkur öll.
Horfum björtum augum til framtíðarinnar !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2008 | 12:34
Dagur íslenskrar tungu 16. nóv.
Dagur íslenskrar tungu er haldinn eins og flestir ættu að muna 16. nóvember. Það hefur verið lengi skoðun mín og trúlega fleiri að frekar ætti að halda upp á dánardaginn en fæðingardaginn. Þetta stafar af því að skólar eru að ljúka starfsvetri sínu og oft á tíðum er mikið los í starfi grunnskólans. Ekki er átt við þetta í neikvæðri merkingu. Þá eru dagarnir notaðir í vetfangsferðir o.s.f.v.. Væri ekki betra að skerpa á mikilvægi tungunnar í andrúmslofti vorsins með uppákomu sem væri því tengd. Ég læt spunameistarana um að fylla í eyðurnar. Náttúra landsins er að vakna af vetrardvala og farfuglarnir komnir til landsins. Bjarkirnar farar að teygja litla sprota inn í sumarið. Er ekki líklegra að við slíkar aðstæður mætti gleðja gamla náttúrufræðinginn betur, en við myrkur nóvembermánaðar.
Ég skora á þá sem fylltu reykmettað herbergi þegar þetta var ákveðið að skipta um skoðun og fá skólana betur inn í þetta starf í framtíðinni.
Herrans árið 1998 var fyrsti dagurinn sem var helgaður minningu Jónasi Hallgrímssyni og af því tilefni gerði ég dálítið ljóð á þeim tíma. Ég læt það fylgja með þessari hugleiðingu um íslenska tungu.
Dagur íslenskrar tungu
16. nóvember
Í dag er dagur íslenskrar tungu
og dauður ertu Jónas minn
á fjörukrá hér forðum ungur
með fjaðurpennann og hattinn þinn
þú lærðir þar ljóta siði
er lagði þig fyrir miði
göróttur var og göldrum búin
en gáfa þín var líka snúin.
Ljóðin þín líka eftir léstu
lofað sé þetta verk þitt
og þökk sé þjóð með festu
sem þekkir í þér verkið sitt
og kallar á þig í ákalli bragsins
að kenna og fræða vort mál
sem vonandi vekur aftur til dagsins
vonina að gleðja þína fornu sál.
Ólafur H. Einarsson 1998
Jónas andaðist í Danmörku 26. maí 1845. Blessuð sé minning hans.
Þetta er áður birt færsla hér á bloggsíðunni minn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við þær aðstæður sem nú ríkja í málum íslensku þjóðarinnar er það hreinlega óraunhæft að íslendingar taki sæti í Öryggisráði Sameiniðuþjóðanna. Fyrir utan það mikilmennsku brjálæði sem fólst í þessari ákvörðun, þá hafa íslendingar ekkert með það að gera að höndla með heimsfrið á þeim tímamótum sem við stöndum nú. Á Íslandi er skálmöld og upplausn sem felst í því að öll grundvallar gildi eru horfin ( fjárhagsleg- og siðferðisleg ).
Við slíkar aðstæður er nær að hugsa um íslendinga og aðstæður þeirra. Það að fara að nota mannafla og fjármuni til þessara hluta má ekki. Ríkisstjórnin mun þurfa að funda á öllum tímum sólarhringsins um afgreiðslur og ná pólitískri samstöðu um afgreiðslur o.s.f.v.. Þannig færi öll orka ríkisstjórnarinnar í mál sem koma okkur ekkert við á þessum tímapunti, nóg er álagið á þessu blessaða fólki. Ég vil einfaldlega að orka stjórnmálamanna á Íslandi verði notuð til hags þjóðar og leggi fremur vinnu í að skapa nýtt samfélag sem er byggt á grunni velferðar fjölskyldna, - skapa nýja atvinnu möguleika til framtíðar.
Eins og þessu er fyrir komið í dag er ljóst að börn okkar og barnabörn munu þurfa að búa við skert lífsgæði vegna þess brjálæðis sem yfir okkur hefur gengið. Skuldir frjálshyggju drengjanna verður arfleiðin til barnanna okkar og barna barna. Það hefur enginn stjórnmálamaður þorað að segja þetta á beran hátt. Þetta er mitt mat á aðstæðum dagsins í dag og þær upphæðir sem nefndar eru í yfirteknu bönkunum eru hreinlega eins og vakna í martröð. Nú verða íslenskir stjórnmálamenn að koma niður á jörðina og hætta við þetta rugl í Öryggisráði Sameiniðuþjóðanna, ekki síðar en í dag.
Bloggar | Breytt 13.10.2008 kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta vekur upp spurningar um stöðu íslensku bankanna og hvort ríkissjóður verði á komandi misserum koma þeim til hjálpar. Enda þótt vandinn sé annar en hjá Northern Rock bankanum þá er þetta hluti af alþjóðlegri kreppu sem er í uppsiglingu.
Hér er færslan :
Breski fjármálaráðherrann var í dag að tilkynna um þjóðnýtingu á Northern Rock bankanum. Eins og kunnugt er þá lenti bankinn í erfiðleikum vegna húsnæðislána sem voru veitt í Bandaríkjunum með vafasömum tryggingum. Ríkisstjórnin breska neyðist til að gera þetta þar sem einkabankar voru ekki tilbúnir að taka við nema með afarkjörum, tap skattgreiðenda hefði því orðið meira. Þetta er tímabundin yfirtaka og verður bankinn aftur seldur á alm. markaði þegar aðstæður á fjármálamörkuðum hafa breyst til batnaðar.
Þetta vekur upp spurningar um stöðu íslensku bankanna og hvort ríkissjóður verði á komandi misserum koma þeim til hjálpar. Enda þótt vandinn sé annar en hjá Northern Rock bankanum þá er þetta hluti af alþjóðlegri kreppu sem er í uppsiglingu.
Þetta var mín spurning um stöðuna 17. feb. s.l. hvar var ríkisstjórnin og bankaeftirlit o.s.f.v. Hefði ekki verið viturlegt af þessu fólki að skoða stöðu íslenskar bankastofnanna við þessi tíðindi og grípa til varna ráðstafanna. Það hefði ég alla vega gert á þessum tímamótum.
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/447488/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2008 | 23:09
Snjór og kuldi hvernig er með það ?
Það er annars undarlegt hvað það kemur manni alltaf á óvart þegar fer að snjóa og vetur skellur á. Ekki eins og hafa ekki upplifað þetta áður, en það er ótrúlegt hvað maður er fljótur að gleyma ( sem betur fer ). Set hér inn gamalt ljóð frá mér sem ég nefni Árstíðir.
Árstíðir
Er ég einn með þér
eina stund að lifa
sjá hvar þú kemur og ferð
hvernig klukkur tímans áfram tifa.
Fas þitt fegurð er
frjálst þér að hlýða
en andlit þitt aldrei fer
aldin fagri allra tíða.
En hvað hvetur þig
hversu sem árin líða
veturinn er samur við sig
sjálfum sér illur að hlýða.
þú veitir, þú tekur
þú ástríka hljóða gyðja
farfugla frjálsa hingað glepur
framverðir norðurs þig tilbiðja.
Lát mér ljúka þér upp
lyftu mér hærra til skýja
þar sem dysjað er þitt kumbl
þangað dreymir mig að flýja.
Ólafur H. Einarsson 1980
Ég hef um nokkurt skeið ekki ritað mikið hér inn á bloggið og vil ég þakka öllum þeim mörgu sem reglulega líta inn á vefsíðu mína fyrir þolinmæðina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2008 | 19:49
Glæsilegur landsleikur kvennaliðsins í fótbolta - áfram stelpur !
Stelpurnar okkar unnu glæsilegan sigur á liði Slóveníu í dag. Mikil stemming var á vellinum og met fjöldi á leiknum. Sérstaklega var gaman hvað stuðningslið í stúkunni var fjörugt og skemmtilegt. Um gang leiksins getið þið lesið á íþróttasíðu mbl.is
http://mbl.is/mm/sport/fotbolti/2008/06/21/island_vann_storsigur_a_sloveniu/
Set hér inn nokkra myndir sem gefa mynd af stemmingunni og leikgleðinni allri. Til hamingju með sigurinn stelpur !
Margrét Lára að skora fyrsta markið úr vítaspyrnu.
Stelpurnar fagna eftir markið.
Liðin raða sér upp í byrjun leiks.
Áfram Ísland !
Fagnað í lok leiks.
Mikil gleði í lok leiksins.
Krækja á heimasíðu HM kvenna
http://www.uefa.com/competitions/woco/fixturesresults/round=2381/match=85441/report=rp.html
Öflugir stuðningsmenn !
Bloggar | Breytt 22.6.2008 kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.4.2008 | 10:52
Gleðilegt sumar 2008 !
Þá er blessað sumarið komið. Vonandi verður það lýð og landi til blessunar. Set hér inn myndir til að minna á hvað bjarta sumarið okkar er yndislegt.
Vatn og botngróður. Þetta er málverki líkast.
Kær kveðja til ykkar lesendur góðir og gleðilegt sumar !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.4.2008 | 22:12
Verkalýshreyfingin á snakki með ráherra um að skoða verð í búðum !
Ég skil ekki hvernig þessi nefnd getur haft áhrif á verðhækkanir. Getur einhver útskýrt það ? Bendi á færsluna mína um hækkun strax á fyrsta opnunardeigi eftir páska hjá Húsasmiðjunni .
Ætlar þessi nefnd að láta Húsasmiðjuna lækka allt hjá sér, en verð var hækkað um 24.85% á vöru sem ég keypti þar, samanber bloggfærsluna hér neðar . Þetta er ekkert nema sýndarmennska stjórnvalda og verklýðhreyfingarinnar og er fremur ógeðfeld. Nær væri að þetta fólk mætti niður á Lækjatog til að mótmæla því að búið er að stela viðrisaukaskattslækkuninni og kjarabótin sem var gerð í síðasta kjarasamningi ( sem blekið er varla þorna af ). Verkalýðshreyfingin á að vera mótmæla niður í bæ en ekki trukkabílstjórar. Vissulega er þörf á lækkun á olíu, en á sama tíma sitja verkalýðsforingjar á fundi með einum af ráðherrum landsins til að leggja á ráðin um að senda fólk í verslanir til að lesa verð á vöru. Henni er breytt daginn út og daginn inn og þjónar engum tilgangi að vera elta það. Það breytir hvort eð engu, enda munar eins og kom fram nýlega nánast engu á verði í þessum búðum sem eiga að vera í samkeppni. Það munaði einni krónu á flestum vörutegundum. Hvaða samkeppni er það viðskiptaráðherra hæstvirtur ? Hvað er ríkisstjórnin að gera til að verja hagsmuni almennings mér er spurn ? Ætla þeir ekki að fara að bjarga bönkum, en ekki almenningi i þessu landi ? Það er verið að ræna flest alþýðuheimili í landinu. Nærri lætur að búið verði að skerða afkomu heimila um 30 % á nokkrum dögum. Hjá venjulegum þjóðum væru orðin blóðug átök á götum þar sem stjórnvald sæti aðgerðalaust og lýsti því yfir trekk í trekk að þau hygðust ekkert gera að svo stöddu. Samfylkingin getur ekki setið blóðug uppi fyrir hendur að taka þátt í því að gera ekki neitt, svo einfalt er það. Afleiðingarnar sem eru nú þegar af þessu ástandi t.d. : Öll verðtryggð lán hækka. Búið er að rýra laun um hátt í 30%. Rekstur allra faratækja hækkar. Öll aðföng hækka Skipafélög hækka aðflutningsgjöld. Fyrirsjáanlegur samdráttur í atvinnumálu atvinnuleysi.
Hvaða ríkistjórn situr með hendur í skauti og hefst ekkert að þegar svona ástand blasir við ? Í hvaða heimi er þetta fólk sem var kosið til að verja hagsmuni almennings með heitstrengingum og loforðum, til að fá umboð kjósenda til að þjóna hagsmunum okkar.
http://ofansveitamadur.blog.is/blog/ofansveitamadur/entry/487037/
Færslan um verðhækkanir
Bloggar | Breytt 11.4.2008 kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2008 | 13:40
Er Samfylkingin að ganga frá kjörfylgi sýnu dauðu ?
Hvað er að gerast með ríkisstjórnina ? Er verið að leita leiða til að slíta samstarfinu. Hvernig getur ríkisstjórnin setið áfram með þessa stefnu? Það er alveg ljóst að Samfylkingin getur ekki verið mikið lengur í þessu samstarfi. Það að bjóða elli- og örorkulífeyrisþegum 4 - 5 þús. krónur í kjarabót vegna nýju kjarasameininganna er hneyksli. Ég skora á flokksfulltrúa sem verða á Flokkstjórnarfundi á morgun að spyrja ráðherranna hvort þeir ætli að ganga af flokknum dauðum, enda þótt skoðanakannanir hafi verið að mæla flokkinn nokkuð vel. Hér á eftir er af vef ASÍ um kjaramálin.
ASÍ, ÖBÍ og Landssamband eldri borgara gagnrýna ríkisstjórnina
Það er því ljóst að ríkisstjórnin er með þessari ákvörðun sinni að ganga þvert gegn grundvallaráherslu og markmiðum kjarasamninganna markmiðum sem hún áður hafði tekið undir og samþykkt.Með ákvörðun sinni er ríkistjórnin að svipta lífeyrisþega mikilvægum og nauðsynlegum kjarabótum.Alþýðusambandið, Öryrkjabandalagið og Landssamband eldri borgara krefjast þess að ríkisstjórnin standi við fyrri yfirlýsingar sínar og hækki bætur almannatrygginga til jafns við kjarasamninga það þýðir hækkun um kr. 18.000 á mánuði fyrir þá sem eru á lægstu bótum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)