Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
29.6.2007 | 16:55
Nei takk Séð og Heyrt ekki skreyta fjöllin með auglýsingum
Ég átti leið austur fyrir fjall í dag. Þegar ég kom að beygjunni að Skíðaskálabrekkunni blasti þessi hryllingur við mér, eins og sést á myndunum sem hér fylgja með. Það er hið víðfræga menningarrit Séð og Heyrt sem setur upp þennan hrylling. Ég vil fullyrða að þetta er lögbrot að setja upp auglýsingar af þessu tagi. Því vona ég að viðkomandi yfirvöld láti fjarlægja þennan ófögnuð. Verði byrjað á þessu mun þetta flæða um allt land og afskræma einstaka náttúru okkar.
Nú eru það mín viðbrögð að ég skal aldrei kaupa þetta blað inn á mitt heimili. Verði þetta hins vegar fjarlægt skal ég gleyma þessu, eins og hverju öðru bernskubreki. Ég vona að ykkar viðbrögð verði þau sömu, þar að segja ekki kaupa þetta blað sem vanvirðir íslenska náttúru á þennan hátt.
Nei takk ekki skreyta fjöllin okkar með auglýsingum. Útgefendur Séð og Heyrt takið eftir, auglýsingamennskan hefur gengið of langt.
24.6.2007 | 08:59
Nú skil ég blómin
Nú skil ég blómin er heiti á ljóði sem ég samdi 1998. Ekki man ég sérstaklega hvað var tilefni þessa ljóðs. Með árunum verða þessir vinir mans, sem lifað hafa langan aldur á vel geymdum blöðum fámálir og hógværir. Dálítið feimin við veröldina. Haldin eins konar félagsfælni. En nú er mál að linni og þessi vængjaði vinur minn fari út í lífið.
Nú skil ég blómin
Nú skil ég blómin
urð þeirra og grjót
nú skil ég fjöllin
fegurð þeirra og mót
nú skil ég náinn
í frera grafinn völlinn.
Nú skil ég lifað líf
lesti og gleði tal
nú skil ég innstu þrá
og ilm í fjalla sal
nú skil ég
hve skammt er lifað
og ljóðin fáu
sem ég hef skrifað.
Ólafur H. Einarsson 1998.
13.6.2007 | 01:05
Hin stórhættulegi 13. júní
Ætlaði ekki að blogga í dag, það er miðvikudagurinn 13. júní. 13. júní er stórhættulegur dagur og maður á bara að vera í rúminu og lesa bók. En...... þá datt mér í hug að lauma bara enn einu ljóði sem fjallaði um vikudagana. Þannig að þetta sleppur af því að þetta er um vikudaga, en ekki neitt annað.
VIKUDAGAR
Mánudagsmorgun ég man það svo vel
hvað morguninn var fagur og tær,
en þriðjudagur var þreyttur, hann ég fel
því með eindæmum var hann þó fagur í gær.
Miðvikudagur var mæddur af raunum
en átti samt mikið af heimsins launum.
Fimmtudagur hljóður, ferðbúinn af draumum;
fagnandi beið hann eftir helgarsögum.
Föstudagur varð frelsarans krossins bani
frelsið í sér, samt er hans vani,
en laugardagur með leti högum
líknaði skrokknum af öllum dögum.
Sunnudag ég sofa vildi
en sólin það ekki skildi.
Ólafur H. Einarsson 2002
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.6.2007 | 10:30
Egilsaga og flesnusaga með ljóði
Ég braut heilann um þetta og ákvað að prufa sjálfur. Reyndar gaf ég mér ekki heila nótt til að búa til ljóðið sem hér kemur á eftir, en Egill kallinn var trúlega pennalaus þarna í dýflísunni forðum og lagði þetta allt á minnið. Sá er munurinn. Já, ég skrifaði ljóði nærri í einum rykk; enda með flensu og hita. Spurningin er hvort ég hefði haldið höfðinu með þetta ljóð. Það verður að bíða seinni tíma, þar að segja þar til ég hitti þá félaga í framlífinu báða örugglega meinlausa engla með vængi. Hver veit ?
Naustuð skip
1.
Skilja lifa, skemmtan þrá
skömm þá fáir mæta,
hugur eflir hrellda brá
heiman má ei græta.
2.
Nærist sál í nausta lagi
gnýr fer tímans tregi
eflir kyrrð, kvalda hagi
kuml tímans þá þegi.
3.
Eflist hamur og höndin blíð
hjartans klukka tifar
löng verður lifuð tíð,
lofgjörð þess sem eftir skrifar.
4.
Væringar manna visku skerða,
vond er tunga helsis
heimur illsku, haturs serða
hjóm á blóma frelsis.
5.
Skömm hljóta, skekur frið
skrúðmælgi natinn tefur,
maður tapar, nísta grið
mal sinn endanlega grefur.
6.
Hlusta þrír, þá heimur telur
hlæast tungur margra hrelldra,
morgun aftur nýjan felur
nærist tár af hvarmi felldra.
7.
Nísti of, þá nökkva þinn
nóg eru skerin sigld
friður kemur, fræðin auðgar
festar lands þá aftur gild.
8.
Veikist of, veikur hugur
verða skil á þáttum,
spynnist þá, í skikkju dugur
skaparans miklum máttum.
9.
Helga skaltu, hlýðni góða
herrans skaparans tign
mekt hans, mikinn gróða
megnar hans sign.
10.
Gera skaltu góða hlut
af gnægðarborði skaparans,
vilji ríkur veltir skut
veit skipi þínu heimsins gjafarans.
11.
Hlutast skaltu, heimsins gerðir
hlíða kalli samviskan
réttlátur mikinn, reiðileysis ferðir
röggsamur við náungann.
12.
Fari lyndi, freisting þín
fugls sem um flýgur
naustast ei í nöpur vín
nauð djöfuls þig sýgur.
* 13.
Nærðu sál á nýju klæði
njóttu dagsins þrek
að kveldi, allan kaleik græði
hvað átök þig tek.
14.
Heimsins launa hlustaðu ei
hnjóð eigna safna,
berast skaltu, aldrei næktarfley
svo börn þín undan kafna.
15.
Þá nálgast þreyttrar æfi
þyrstir ei lífið meir,
tak mal þinn og klæði
nægjusemin einni tilheyr.
16.
Við tré, vistast skaltu
veit austri hót,
þá nótt fer heljar haltu
ei lífið mót.
17.
Þá morgun aftur rísi
mót sólu dags,
líkami þinn lausnarinn hýsi
líknar brú hins nýja lags.
18.
Náð þín verði nokkuð tekið
naustist sálarskipið allt,
uns skrokkhaldið umkomulaust rekið
umverpist, verður kalt.
19.
Rísi sál, þá röskast efinn
roðagull í paradís,
eimur blóma eylíft gefin
eilíf verði þín vistarprís.
20.
Naustað skipið, í nálægð grafi
nóttin horfin braut,
bið ég þá aftur Guð hafi,
byrgi skipið þitt nýrri þraut.
Ólafur H. Einarsson 2001
* Eftir tólfta erindi á að signa sig þegar þetta er lesið
23.5.2007 | 00:48
Ekkert blót á blogginu - áskorun
Skelfing er leiðinlegt allt blót og ragn. Fyrirsögn eins og Ingvi Hrafn ( Hrafnaþingsmaður ) og fleirri hafa verið með hér á blogginu. Mér finnst fólk setji niður þegar það viðhefur blót í fjölmiðlum almennt. Fyrir utan það þá særir það mig ( í trúarlegum skilningi ) og er vont fordæmi fyrir okkur öll, gagnvart börnunum okkar og barnabörnum o.s.f.v..
Tökum saman um það að úthýsa öllu blóti af þessum miðli og öðrum. Ég veit að við viljum ekki samfélag sem upphefur slík gildi.
Ágætu bloggara og aðrir landsmenn hættum að blóta og leggjum rækt við hin góðu gildi og fordæmi.
Trúmál og siðferði | Breytt 24.5.2007 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)