Færsluflokkur: Matur og drykkur
21.6.2007 | 00:29
Sumarsögur - blómstrandi nætur
Er eiginlega of upptekin af þessum fallegu dögum. Lúpínan flæðir yfir holt og hæðir og hvar sem maður lítur yðar allt af lífi. Var síðast í gær að henda út geitung, gríðarlega stórum aftur í sæluna og sumarið. Sóleyar klæða túnin hvar sem maður lítur, já hvað þarf maður svo sem að kvarta. Landið heilsar manni í óendanlegum yndisleika.
Senn er sumri komin kraftur
Senn er sumri komin kraftur
segðu það vinum mínum
að handan fjalla hefjist aftur
hlýja sólar nýju líni
land þá klæðir lautir og bala
þá er ljúft að njóta í leti og víni
og leiðast ekki af heimsins kala.
Ólafur H. Einarsson 1985
Matur og drykkur | Breytt 22.6.2007 kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2007 | 00:48
Ekkert blót á blogginu - áskorun
Skelfing er leiðinlegt allt blót og ragn. Fyrirsögn eins og Ingvi Hrafn ( Hrafnaþingsmaður ) og fleirri hafa verið með hér á blogginu. Mér finnst fólk setji niður þegar það viðhefur blót í fjölmiðlum almennt. Fyrir utan það þá særir það mig ( í trúarlegum skilningi ) og er vont fordæmi fyrir okkur öll, gagnvart börnunum okkar og barnabörnum o.s.f.v..
Tökum saman um það að úthýsa öllu blóti af þessum miðli og öðrum. Ég veit að við viljum ekki samfélag sem upphefur slík gildi.
Ágætu bloggara og aðrir landsmenn hættum að blóta og leggjum rækt við hin góðu gildi og fordæmi.
Matur og drykkur | Breytt 24.5.2007 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)