Fólkið á Flateyri

Ég hef samúð með fólkinu á Flateyri.  Það er dapurlegt að ræna fólki lífsviðurværinu og sjálfsvirðingunni.  Þið ríku gæjar hvar er samfélagsleg skylda ykkar.  Sláið saman í púkk og kaupið þetta allt.  Sýnið nú að það eigi ekki að öfunda þá sem verða ríkir á Íslandi.  Það er samfélagsleg skylda ykkar og réttlætingin fyrir því að hin frjálsu peningaöfl fái að blómstra áfram.  Látið ekki almenning í þessu landi sjá að þið notið bara peningana til að kaupa, þotur, fótboltafélög, jarðir, bíla, stóreignir, erlend fyrirtæki til að halda uppi vinnu í útlöndum.

 

Fólkið á Flateyri hvort sem það eru íslendingar eða annarra þjóða fólk, þá höfum við öll skildu við það.  Látum 100 blóm blómstra á Flateyri og komum fiskvinnslunni aftur í gang.  Þetta eru smáaurar í vösum ykkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband