23.5.2007 | 00:48
Ekkert blót á blogginu - áskorun
Skelfing er leiðinlegt allt blót og ragn. Fyrirsögn eins og Ingvi Hrafn ( Hrafnaþingsmaður ) og fleirri hafa verið með hér á blogginu. Mér finnst fólk setji niður þegar það viðhefur blót í fjölmiðlum almennt. Fyrir utan það þá særir það mig ( í trúarlegum skilningi ) og er vont fordæmi fyrir okkur öll, gagnvart börnunum okkar og barnabörnum o.s.f.v..
Tökum saman um það að úthýsa öllu blóti af þessum miðli og öðrum. Ég veit að við viljum ekki samfélag sem upphefur slík gildi.
Ágætu bloggara og aðrir landsmenn hættum að blóta og leggjum rækt við hin góðu gildi og fordæmi.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál, Enski boltinn, Ferðalög, Formúla 1, Íþróttir, Kvikmyndir, Lífstíll, Ljóð, Matur og drykkur, Menning og listir, Sjónvarp, Spil og leikir, Stjórnmál og samfélag, Tónlist, Trúmál og siðferði, Tölvur og tækni, Vefurinn, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | Breytt 24.5.2007 kl. 16:38 | Facebook
Athugasemdir
Ég er alver sammála þér, ekkert helvítis blót hér á blogginu.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 23.5.2007 kl. 01:03
Það er alltaf gaman af kaldhæðninni.
Ólafur H Einarsson, 23.5.2007 kl. 23:39
Ég er sammála þér varðandi blótið. Það er hallærislegt að vera blótandi og bölvandi í öllum setningum. Ég er alin upp við svona málfar og það tók svolítinn tíma að venja sig af því. Ég varð nefnilega að finna önnur orð í staðinn. Blót og bölv er að mínu mati skortur á orðaforða.
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 07:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.