Hin stórhættulegi 13. júní

Ætlaði ekki að blogga í dag, það er miðvikudagurinn 13. júní.  13. júní er stórhættulegur dagur og maður á bara að vera í rúminu og lesa bók.  En...... þá datt mér í hug að lauma bara enn einu ljóði sem fjallaði um vikudagana.  Þannig að þetta sleppur af því að þetta er um vikudaga, en ekki neitt annað.

 

VIKUDAGAR

 

Mánudagsmorgun ég man það svo vel

hvað morguninn var fagur og tær,

en þriðjudagur var þreyttur, hann ég fel

því með eindæmum var hann þó fagur í gær.

Miðvikudagur var mæddur af raunum

en átti samt mikið af heimsins launum.

Fimmtudagur hljóður, ferðbúinn af draumum;

fagnandi beið hann eftir helgarsögum.

Föstudagur varð frelsarans krossins bani

frelsið í sér, samt er hans vani,

en laugardagur með leti högum

líknaði skrokknum af öllum dögum.

Sunnudag ég sofa vildi

en sólin það ekki skildi.

          Ólafur H. Einarsson 2002


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Gaman að skoða síðuna þína Ólafur. 13. júní í dag og afar hættulegur dagur? Ég er að fara í kaupstaðarferð á Selfoss til útréttinga á hinum ýmsu hlutum sem varðar Tyrklandsferðina mína frægu. Ég vona að það gangi þrautalaust fyrir sig

Rúna Guðfinnsdóttir, 13.6.2007 kl. 09:10

2 Smámynd: Ólafur H Einarsson

Það er eitthvað svo hallærislegt að vera bara hjátrúarfullur á föstudögum þegar 13. ber upp á.  Ég hef meiri áhyggjur af miðvikudögum, enda kom það í ljós strax í morgun frúin mín er að fara til Danmerkur í fimm daga.  Það hafði ekki verið minnst á þetta í gær eða áður.  Einfaldlega staðfestir þetta með miðvikudaginn 13. júní.  Ég hef áhyggjur af þessari ferð á Selfoss hjá þér, svo aldrei að vita nema að verði kaupstaðlykt af þér þegar þú kemur til baka eins og sagt er í sveitinni. Hmm...............  bara grín.

Ólafur H Einarsson, 13.6.2007 kl. 16:39

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Sunnudagar þykja mér skemmtilegastir  Laugardagar í öðru sæti, föstudagar í því 3ja.....

Marta B Helgadóttir, 13.6.2007 kl. 17:57

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég er komin heim eftir kaupstaðarferð. Það gekk á ýmsu..bæði góðu og miður góðu..hvers var annars að vænta..það er 13. júní?  Ég skrifa um ferð mína á síðunni minni

Rúna Guðfinnsdóttir, 13.6.2007 kl. 18:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband